Persónudýrkun er aldrei góð.

Umræðan um Ólaf Ragnar Grímsson einkennist of mikið af persónudýrkun og múgsefjun, að mínu mati.

Ólafur hefur setið ansi lengi í embætti og verið afskaplega umdeildur sem forseti.

En því er ekki að neita, að hann stóð sig með stakri prýði í Icesave málinu og hann hefur sagt ýmislegt gott.

Það er hinsvegar engum mani hollt að vera hafinn upp til skýjanna og að fólk haldi að enginn annar en hann geti gegnt þessu embætti, það er út í hött.

Við eigum fullt af hæfu og vel menntuðu fólki sem getur sinnt forsetaembættinu með miklum sóma.

Það var reyndar mjög gott að hafa forseta sem stóð með þjóðinni, á meðan þessi lánlausa ríkisstjórn ætlaði að þvinga okkur til að greiða Icesave ósómann.

Ólíklegt er hinsvegar að þjóðin kjósi sömu ríkisstjórn yfir sig aftur, þannig að flest bendir til þess að við munum búa við skárri ríkisstjórn eftir næstu kosningar.

Óhætt er að þakka Ólafi Ragnari fyrir það sem hann hefur gert vel, fyrirgefa honum yfisrjónir í fortíðinni og óska honum velfarnaðar um ókomna tíð.

Þjóðin má ekki hugsa sem svo, að það sé enginn hæfur einstaklingur til að taka við embætti forseta Íslands.

Við eigum sem betur fer, fullt af hæfum körlum og konum, til að gegna embætti forseta Íslands með sóma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Jón Sæfari; æfinlega !

Nema; hvað mér finnst persónulega, að Ólafur Ragnar myndi sæma sér vel, sem Landshöfðingi; eða þá Ríkisstjóri, á 1/4 þeirra launa, sem hann hefir verið, sem Forseti, til þessa.

Tímalengd setu þjóðhöfðingja; skiptir öngvu máli, Jón minn. Haile Selassie I., hinn kunni Eþíópíukeisari; afkomandi Salla konungs (Salómons) og Drottning arinnar af Sabah, sat áratugunum saman, unz honum var steypt, árið 1974.

Hiróhító Japanskeisari; varð ellidauður, á sínum tróni - Enn; situr Rama IX. Thailandskonungur (síðan; 1946), og lætur hvergi deigann síga, Jón minn.

Það er sama; hvort það eru erfða einvaldar - eða þá kosnir, í almennum kosningum, mannkostirnir skipta máli, ekki einhver ár - til eða frá, fornvinur góður.

Talandi um persónudýrkun; endilega, reyndu að fá skrautfuglana, vini þína í flokks nefnunni, sem kennir sig við sjálfstæði, til þess að láta læknast, af þeim kvilla - yrðu mun skaplegri viðræðu; sumir þeirra alla vega, eftirá.

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /       

Óskar Helgi Helgason 28.2.2012 kl. 12:50

2 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Heill og sæll fornvinur kær.

Það er gaman að þú skulir byrja á því að nefna Haile Selassie, en hann er talandi dæmi um fáránleika persónudýrkunnar.

Því er ekki að neita, að kallinn beitti sér fyrir ýmsum góðum málum, afnámi þrælahalds osfrv., en honum gekk ekki nógu vel að ráða við efnahagsmálin ef ég man rétt. Var honum ekki steypt af stóli einmitt vegna þess að fólki fannst hann sitja í fílabeinsturni, búandi í flottri höll og akandi um á eðalkerru á meðan almúginn lapti dauðann úr skel?

En óvíst er hvort persónudýrkunin í kring um Ólaf Ragnar verði eins mikil og í kring um fallna Eþíópíukleisarann, en Haile sálugi mun víst tignaður sem Guð eða Jesú af einhverjum hópum í Afríku.

Þetta er svona útúrdúr Óskar minn, það er rétt sem þú segir, tímalengdin sjálf skiptir ekki máli, heldur er það persónan sem gegnir embættinu. Ég efast um að Ólafur sé nógu sterkur til að þola mikla aðdáun, það er mín skoðun í þessu máli.

Einnig finnst mér það bera vott um lélegt traust manna á eigin þjóð, ef þeir telja að aðeins einn maður geti orðið góður forseti.

Með bestu kveðjum sem jafnan úr Grafarvogssókn,

Jón R.

Jón Ríkharðsson, 28.2.2012 kl. 15:29

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þarna erum við ekki sammála,góði boggvinur, als ekki , ég kaus ÓLaf ekki sem Forseta en vissi í gegnum hans ferli að þarna fór gáfumaður mjög!! en var fyrst Framóknarmaður ,svo Allaballi eða kommi,en eftir að hann varð Forseti hefur hann unnið á meira og meira,og ekki fara að segja að ég sétji hann í Dyrlingatölu als ekki!!!! en berti mann í þetta sé ekki í bráð ,okkur ríður að hafan meðan þessi ríkissstjorn er við völd,ekki spurning/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 28.2.2012 kl. 17:22

4 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Halli minn, við erum nú að mestu leiti sammála.

Þessi ríkisstjórn á sennilega rúmt ár eftir, að hámarki, en það er rétt okkur veitti ekki af að njóta liðsinnis Ólafs til að koma í veg fyrir Icesave dellurnar.

Ég veit að þú ert skynsamur maður Halli minn og setur engan í dýrlingatölu.

En ég held að við getum fundið sambærilegan einstakling í stað Ólafs, mér finnst hann hafa verið ansi gloppóttur lengst af, en hann hefur átt góða spretti á liðnum misserum.

Ég á bara vont með að treysta honum fullkomlega, svona í hreinskilni sagt.

Jón Ríkharðsson, 28.2.2012 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband