Horfum til framtíðar, fortíðin er liðin.

Tæpum fjórum árum eftir hrun eru margir fastir í ranghugmyndum varðandi það og kalla enþá eftir uppgjöri.

Uppgjörið hefur farið fram og ólíklegt er að eitthvað nýtt komi fram í dagsljósið sem útskýrir aðdraganda og orsök þess.

Vinstri flokkunum hefur mistekist að hengja það á Sjálfstæðisflokkinn, Geir H. Haarde var dæmdur saklaus, ef frá er talin venja allra ríkisstjórna lýðveldistímans, að fylgja ekki fyrirmælum stjórnarskrárinnar sem segir til um umræður mikilvægra mála á ríkisstjórnarfundum.

Rannsóknarskýrslan staðfestir að hrunið var ekki sjálfstæðismönnum að kenna og heldur ekki einkavæðingu bankanna, allar ábendingar varðandi það hvað hægt hefði verið að gera halda varla vatni.

Engum hefur tekist að benda á fordæmi fyrir þeim aðgerðum sem sagt er að Geir og hans ríkisstjórn hefði átt að framkvæma.

Það nýjasta hjá ríkisstjórninni er að rannsaka einkavæðingu bankanna, þrátt fyrir að til sé skýrsla Framkvæmdarnefndar um einkavæðingu og skýrsla Ríkisendurskoðunar ásamt því að Rna tók málið til ítarlegrar umfjöllunar.

Enda leggur ríkisstjórnin ekki í að rannsaka málið frekar, þau segja þetta annað slagið til að slá ryki í augu kjósenda, en gleyma að geta þess að frumvarp varðandi þetta mál hefur legið ofan í skúffu í ca. tvö ár og ekkert með það gert.

Við þurfum ríkisstjórn sem styður einkaframtakið, skapar frjóan jarðveg fyrir alla löglega starfsemi sem hugsast getur og er ekki stöðugt að skapa úlfúð um mál sem litlu skipta.

Ný stjórnarskrá skapar ekki verðmæti rifrildi um sjávarútveginn skapar heldur ekki verðmæti og þaðan af síður breytingar á stjórnarráðinu, en þetta eru helstu áherslur ríkisstjórnarinnar.

Ef að skortur er á fjármagni þá er vinna eina raunhæfa leiðin til að nálgast það og ef það skortir sátt, þá eiga þeir sem leiða umræðuna að sleppa óþarfa rifrildi.

Þetta eru margsannaðar patent lausnir sem svínvirka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fortíðin er leiðarljós til framtíðar, án fortíðar-viðmiðunar, getum við ekki haft vitræna framtíð;
Fortíðin segir það klárlega að sjálfstæðisflokkurinn er verstur flokka, það sem þjóðin tekst við nú er handvömm og spilling sjálfstæðisflokks, að mestum hluta. Það er fásinna að ætla að það að koma völdum til geranda hrunsins verði okkur til gagns... alger vitleysa

DoctorE 22.5.2012 kl. 15:06

2 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Við skulum segja að heilbrigð skynsemi sé best DoctorE, en ég veit svo sem ekkert hvort þú ert hrifinn af henni.

Það er slæmt að festast í vijum fortíðar, en varla þarf að nefna það að vitanlega læra allir af fortíðinni.

Þessi skoðun sem þú nefnir, varðandi Sjálfstæðisflokkinn, hún þekkist vissulega hjá fleirum en þér, en hún byggist á huglægu mati en ekki staðreyndum.

Jón Ríkharðsson, 22.5.2012 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband